Eftirlit með fjárreiðum sjálfseignarstofnana

Ríkisendurskoðun hefur eftirlit með sjóðum og stofnunum sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá. Um er að ræða sjálfseignarstofnanir sem ekki stunda atvinnurekstur, einkum ýmsa styrktar- og minningarsjóði og góðgerðarstofnanir.

Samkvæmt lögum nr. 19/1988 skal Ríkisendurskoðun halda skrá yfir heildartekjur og gjöld, eignir og skuldir allra slíkra aðila, ásamt athugasemdum við framlagða reikninga. Hafi reikningur ekki borist í eitt ár eða hann reynst ófullkominn að einhverju leyti getur Ríkisendurskoðun vísað málinu til sýslumanns sem eftir atvikum getur falið lögreglu að rannsaka fjárreiður viðkomandi aðila.

 

Ársreikningsform vegna ársins 2011

Texti umburðarbréfs Ríkisendurskoðunar til vörsluaðila sjóða og stofnana (sent 30. janúar 2012)

 

Eldri gögn:

Yfirlit um sjálfseignarstofnanir og sjóði sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá fyrir rekstrarárið 2009

Yfirlit um niðurstöður reikninga sjálfseignarstofnana og sjóða sem skilað höfðu ársreikningum vegna ársins 2009 fyrir lok desember 2010

Yfirlit um sjálfseignarstofnanir og sjóði sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá fyrir rekstrarárið 2008

Yfirlit um fjármál sjóða og stofnana árið 2007

Ársreikningsform vegna ársins 2010