Lög og reglur

Ríkisendurskoðun starfar samkvæmt lögum um stofnunina, nr. 86/1997, en henni eru einnig falin verkefni samkvæmt öðrum lögum. Þar er m.a. átt við lög nr. 162/2006 um fjármál stjórnmálaflokka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra og lög nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá. Einnig hefur stofnunin í störfum sínum hliðsjón af stefnuyfirlýsingu og stöðlum Alþjóðasamtaka ríkisendurskoðana. Við fjárhagsendurskoðun taka starfsmenn enn fremur mið af lögum um endurskoðendur og eftir atvikum alþjóðlegum endurskoðunar- og reikningsskilastöðlum. Þá hefur stofnunin sett sér siðareglur.