Fréttir

15.02.2012

Misbrestur á því að stofnanir skili rekstraráætlunum innan tímamarka

Ríkisendurskoðun telur mikilvægt að ríkisstofnanir virði tímafrest sem gildir um skil á rekstraráætlunum til ráðuneyta. Tryggja þurfi að allar áætlanir séu skráðar inn í bókhaldskerfi ríkisins um leið og þær hafa hlotið samþykki. Þá sé brýnt að ráðuneytin samþykki ekki rekstraráætlanir sem ekki rúmast innan fjárheimilda. [meira]

09.02.2012

Skýrsla um skuldbindandi samninga umhverfisráðuneytisins

Umhverfisráðuneytið þarf að tryggja að eftirlit þess með framkvæmd skuldbindandi samninga, sem það hefur gert við aðila utan ríkisins, sé að fullu í samræmi við ákvæði þeirra. Þá þarf ráðuneytið að tengja greiðslur til viðsemjenda við frammistöðu þeirra og bæta yfirferð upplýsinga sem frá þeim berast. [meira]

08.02.2012

Sjötta skýrslan um samningamál einstakra ráðuneyta

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur gert fjölmarga samninga við aðila utan ríkisins um að þeir taki að sér verkefni gegn greiðslum úr ríkissjóði. Ríkisendurskoðun telur að bæta þurfi eftirlit með framkvæmd þessara samninga sem og ýmislegt annað sem tengist umsýslu þeirra. Ráðuneytið vinnur að endurbótum á samningamálum sínum. [meira]

03.02.2012

Þarf að efla eftirlit sitt með framkvæmd skuldbindandi samninga

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið þarf að efla eftirlit sitt með framkvæmd skuldbindandi samninga sem það hefur gert við aðila utan ríkisins, samræma ákvæði þeirra og skjalfesta verklagsreglur vegna samningamála. [meira]

26.01.2012

Taka þarf af skarið um framtíð Náttúruminjasafnsins

Ríkisendurskoðun telur að Náttúruminjasafn Íslands uppfylli ekki lögbundndar skyldur sínar sem safn og höfuðsafn. Stjórnvöld þurfi að ákveða hvernig haga eigi starfseminni til framtíðar og móta skýra stefnu um hana. Annaðhvort verði safnið eflt sem sérstök stofnun eða sameinað annarri stofnun. [meira]

18.01.2012

Ýmis álitaefni uppi um meðferð fjárhagslegra skuldbindinga í fjárlögum og ríkisreikningi

Ríkisendurskoðun telur að fást þurfi niðurstaða um hvort breyta eigi umfjöllun um tilteknar fjárhagslegar skuldbindingar ríkissjóðs í fjárlögum og ríkisreikningi. Hér er átt við skuldbindingar vegna verk-, leigu- og þjónustusamninga sem gerðir eru til langs tíma, lífeyrisskuldbindingar og skuldbindingar sem tengjast einkaframkvæmdum og styrkveitingum. [meira]

11.01.2012

Engin ábending vegna skuldbindandi samnings forsætisráðuneytisins

Forsætisráðuneytið hefur í meginatriðum sinnt eftirliti og eftirfylgni með þjónustusamningi sínum við Vesturfarasetrið á Hofsósi í samræmi við ákvæði hans. Samningur þessi rann út í árslok 2011 jafnframt því sem forræði í málefnum setursins fluttist til mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Það mun því héðan í frá annast samningsgerð við setrið og endurnýjun þjónustusamnings. Af þessum sökum sér Ríkisendurskoðun ekki ástæðu til að beina ábendingum vegna samningamála til forsætisráðuneytisins.  [meira]

09.01.2012

Innanríkisráðuneytið hefur nokkuð góða yfirsýn um skuldbindandi samninga

Innanríkisráðuneytið og undirstofnanir þess hafa gert allmarga saminga við aðila utan ríkisins um að þeir taki að sér verkefni gegn greiðslum úr ríkissjóði. Ríkisendurskoðun telur að ráðuneytið hafi nokkuð góða yfirsýn um þessa samninga en að efla þurfi eftirlit með framkvæmd þeirra. [meira]

03.01.2012

Stefna Ríkisendurskoðunar 2012–2015

Samkvæmt stefnu Ríkisendurskoðunar fyrir tímabilið 2012–2015 vill stofnunin njóta trausts Alþingis, stjórnvalda og almennings. Þessu markmiði hyggst hún m.a. ná með því að veita stjórnvöldum virkt aðhald, ástunda fagleg vinnubrögð og veita áreiðanlegar og óhlutdrægar upplýsingar um starfsemi ríkisins.  [meira]

21.12.2011

Áætlun um stjórnsýsluúttektir næsta árs

Ríkisendurskoðun mun í stjórnsýsluúttektum sínum á næsta ári m.a. leggja áherslu á að þjóna Alþingi og skattborgurum með þörfum, tímanlegum, óhlutdrægum og áreiðanlegum upplýsingum um ríkisreksturinn. Stofnunin hefur birt áætlun um stjórnsýsluendurskoðun fyrir árið 2012. [meira]

14.12.2011

Bæta þarf eftirlit með framkvæmd skuldbindandi samninga velferðarráðuneytisins

Velferðarráðuneytið og undirstofnanir þess hafa gert allmarga samninga við aðila utan ríkisins um að þeir taki að sér verkefni gegn greiðslum úr ríkissjóði. Ríkisendurskoðun telur að bæta þurfi eftirlit með framkvæmd þessara samninga sem og ýmislegt annað sem tengist umsýslu þeirra. [meira]

09.12.2011

Iðnaðarráðuneytið hefur góða yfirsýn um skuldbindandi samninga

Iðnaðarráðuneytið hefur gert allmarga samninga við aðila utan ríkisins um að þeir taki að sér verkefni gegn greiðslum úr ríkissjóði. Ríkisendurskoðun telur að ráðuneytið hafi góða yfirsýn um þessa samninga en jafnframt að bæta þurfi ýmislegt í framkvæmd þeirra og umsýslu. [meira]

06.12.2011

Ekki vísbendingar um beingreiðslur umfram rétt

Ríkisendurskoðun telur ekki ástæðu til að ætla að sauðfjárbændur fái hærri beingreiðslur en þeir eiga rétt á samkvæmt lögum og reglum.  [meira]

01.12.2011

Nefnd til að endurskoða lög um Ríkisendurskoðun

Forsætisnefnd Alþingis hefur skipað þriggja manna nefnd til að fara yfir og endurskoða lög um Ríkisendurskoðun. Tilefnið er m.a. skýrsla vinnuhóps sem falið var að fjalla um eftirlit þingsins með framkvæmdarvaldinu.

 [meira]

29.11.2011

Leysa þarf fjárhagsvanda Hólaskóla og ákveða framtíð hans

Uppsafnaður rekstrarhalli og aðrar skuldir Hólaskóla námu meira en 200 m.kr. í lok síðasta árs. Að mati Ríkisendurskoðunar er brýnt að leysa þennan vanda. Einnig þurfa yfirvöld menntamála að ákveða framtíð skólans en í því efni telur Ríkisendurskoðun þrennt koma til greina.  [meira]