Fréttir frá árinu 2008
Stjórnsýsluúttekt á Þjóðleikhúsinu
Þjóðleikhúsið sinnir allvel lögboðnum verkefnum sínum en fjárhagsstaða þess er erfið. Brýnt er að leikhúsið sníði sér stakk eftir vexti og leiti leiða til að auka tekjur sínar og minnka kostnað. Þá þarf að bæta áætlanagerð og árangursstjórnun þess. [meira]
Skýrsla um endurskoðun ríkisreiknings 2007
Ríkisendurskoðun gerir athugasemdir við ýmis atriði bókhalds og fjárreiðna hjá opinberum aðilum í skýrslu um endurskoðun ríkisreiknings 2007. Flestar þessara athugasemda hafa birst áður í skýrslum stofnunarinnar. [meira]
Nýr ríkisendurskoðandi

Í dag, 1. júlí 2008, afhenti Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, Sveini Arasyni skipunarbréf í embætti ríkisendurskoðanda. Samkvæmt lögum um Ríkisendurskoðun er skipunin til sex ára. [meira]
Samgönguframkvæmdir. Stjórnsýsluúttekt

Ríkisendurskoðun leggur til að stjórnvöld kanni möguleika á að breyta stofnanaskipan samgöngumála þannig að sjálfstæðri stofnun verði falið að annast alla stjórnsýslu á því sviði. Annarri stofnun verði falin umsýsla allra samgönguframkvæmda og þeirri þriðju að annast rekstur og viðhald samgöngumannvirkja. Óháð slíkum breytingum þarf jafnframt að þróa reglur og aðferðir sem stuðla að hagkvæmari og árangursríkari samgönguframkvæmdum en verið hafa. [meira]
VII. þing Evrópusamtaka ríkisendurskoðana
Dagana 2.-5. júní 2008 var VII. þing Evrópusamtaka ríkisendurskoðana (EUROSAI) haldið í Kraká í Póllandi. Þingið sóttu um 200 fulltrúar allflestra aðildarríkja samtakanna sem nú eru 48, þar á meðal tveir fulltrúar frá Íslandi. Samhliða fóru fram tveir stjórnarfundir samtakanna þar sem Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi hefur átt setu undanfarin þrjú ár. Á seinni fundinum var hann kjörinn annar varaformaður stjórnarinnar. [meira]
Eftirfylgni stjórnsýsluúttekta ársins 2004
Ríkisendurskoðun hefur síðustu tvö ár leitast við að meta viðbrögð stjórnvalda og stofnana við þeim ábendingum og athugasemdum sem fram koma í stjórnsýsluúttektum hennar. Þetta er gert með sérstökum eftirfylgniúttektum þremur árum eftir að ábendingarnar voru settar fram. Athuganir þessar eru liður í því að meta árangur stjórnsýsluendurskoðunar. [meira]
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

Ríkisendurskoðun telur að fag- og fjárhagsleg markmið stjórnvalda með sameiningu allrar lög- og tollgæslu á Suðurnesjum árið 2007 hafi náðst að hluta til. Um leið tekur hún undir tillögur dómsmálaráðuneytisins um framtíðarskipulag þessara mála. Vel komi þó til álita að Lögreglustjóranum á Suðurnesjum verði áfram falin dagleg stjórnun verkefna á sviði tollgæslu og flugverndar með sérstökum þjónustusamningum. Með breyttri skipan þurfi stjórnvöld einnig að taka afstöðu til umfangs lög- og tollgæslu á Keflavíkurflugvelli. Þá telur Ríkisendurskoðun að dómsmálaráðuneytið og Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafi ákveðið að leysa ágreining sinn og vinna sameiginlega að fyrirhuguðum breytingum á skipulagi og rekstri embættisins. [meira]
Hjúkrunarheimilið Sóltún. Athugun á RAI-skráningu og greiðslum fyrir árið 2006

Ríkisendurskoðun hefur sent frá sér greinargerðina "Hjúkrunarheimilið Sóltún. Athugun á RAI-skráningu og greiðslum fyrir árið 2006". Greinargerðin var gerð í því skyni að kanna hvernig staðið hefur verið að framkvæmd þjónustusamnings heilbrigðisráðuneytisins og hjúkrunarheimilisins og sannreyna útreikning á þyngdarstuðlum fyrir heimilið. Greinargerðin var send heilbrigðisráðuneytinu og stjórnendum Sóltúns hinn 18. apríl 2008 og síðan kynnt heilbrigðis- og fjárlaganefndum Alþingis. [meira]
Vinnumálastofnun. Stjórnsýsluúttekt
Ríkisendurskoðun telur að endurskoða þurfi innra skipulag og stjórnun Vinnumálastofnunar, gera árangursstjórnunarsamning við hana og móta henni faglega stefnu. Þá þarf að einfalda stjórnsýslu þeirra sjóða sem stofnunin hefur umsýslu með og er í því samhengi lagt til að efnt verði til nýrrar stofnunar velferðarmála. Þá er hvatt til að kannað verði með formlegum hætti hvort rétt sé að sameina Vinnumálastofnun og Vinnueftirlit ríkisins í eina öfluga stofnun á sviði vinnumarkaðsmála. [meira]
Sigurður Þórðarson: Útvistun verkefna ríkis og sveitarfélaga

Í þessu erindi ræðir Sigurður Þórðarson um útvistun verkefna ríkisins, eins og málið horfir við Ríkisendurskoðun. Stofnunin getur komið að slíkum verkefnum bæði sem fjárhagsendurskoðandi, eftirlitsaðili með reikningsgerð á hendur ríkisins og loks getur hún gert stjórnsýsluathuganir á verkefnunum. [meira]
Framkvæmd fjárlaga árið 2007 og ársáætlanir 2008
Ríkisendurskoðun gagnrýnir enn einu sinni misbresti á framkvæmd fjárlaga og virðingarleysi fyrir bindandi fyrirmælum þeirra. Þetta birtist bæði í hallarekstri og ónýttum fjárheimildum fjölmargra stofnana. Sérstaklega er minnt á ábyrgð ráðuneyta í þessu efni og bent á nauðsyn þess að hún verði gerð skýrari í lögum og reglum. Skil stofnana á ársáætlunum hafa hins vegar batnað verulega. [meira]
Ríkisendurskoðun nýtur góðs trausts

Ríkisendurskoðun hefur nú í fyrsta sinn látið kanna viðhorf almennings til nokkurra þátta sem varða starfsemi stofnunarinnar. Fram kemur m.a. að hún nýtur trausts um 66% þjóðarinnar. [meira]
Ársskýrsla Ríkisendurskoðunar 2007

Ríkisendurskoðun tókst í meginatriðum að fylgja áætlun um verkefnafjölda og verkefnaskil á árinu 2007 þrátt fyrir heldur færri vinnustundir en gert var ráð fyrir. Stofnunin áritaði ársreikninga allra ríkisaðila og mikilvægustu viðfangsefna og sendi frá sér fleiri skýrslur og greinargerðir en undanfarin tvö ár. [meira]
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. Stjórnsýsluúttekt

Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar ehf. var fyllilega heimilt að selja eignir ríkisins á fyrrum varnarliðssvæði á Keflavíkurflugvelli án aðkomu Ríkiskaupa og bar ekki skylda til að bjóða þær út. Þá var hagsmuna ríkisins gætt við ráðstöfun þeirra. Gæta hefði mátt betur að hæfisskilyrðum stjórnarmanna og framkvæmdastjóra Þróunarfélagsins við söluna en ekki verður séð að slíkir þættir hafi haft áhrif á hana eða valdi því að sölusamningar séu ógildir. [meira]
Reglur um þinglega meðferð skýrslna Ríkisendurskoðunar
Forsætisnefnd Alþingis samþykkti á fundi sínum 12. febrúar 2008 reglur um þinglega meðferð skýrslna Ríkisendurskoðunar. [meira]
Keflavíkurflugvöllur. Vatnstjón

Í lok nóvember 2006 óskaði utanríkisráðuneytið eftir því að Ríkisendurskoðun gerði úttekt á eftirliti og umsýslu ráðuneytisins, stofnana þess og annarra aðila með byggingum á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli þegar vatnsskemmdir urðu á nokkrum bygginganna. Ríkisendurskoðun hefur lokið athugun sinni og sent utanríkisráðuneytinu greinargerð um málið. Meginniðurstaða stofnunarinnar er þessi: [meira]
Hagkvæmir og skilvirkir fundir. Góðar fundarvenjur

Á hverjum degi eru haldnir fjölmargir formlegir og óformlegir fundir í íslenskri stjórnsýslu. Mikilvægt er að þeim tíma sem fer til slíkra starfa sé vel varið þannig að stuðlað sé að hagkvæmni og skilvirkni í rekstri. Góðar fundarvenjur eru lykilatriði í því samhengi. [meira]
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga og grunnskólinn

Jafna má kostnað íslenskra sveitarfélaga við að reka grunnskólann enn meir en nú er gert með því að einfalda þær reglur sem Jöfnunarsjóður sveitarfélaga notar við að úthluta framlögum til þeirra. Þá mætti nýta sjóðinn betur til að auka gæði skólastarfsins og draga úr þeim mun sem er á skólum að því leyti. Einnig er mikilvægt að menntamálaráðuneytið auki eftirlit með starfi grunnskólans og að sveitarfélögin komi á samræmdri flokkun kostnaðar í reikningsskilum vegna hans. [meira]