Um okkur

Smellið á myndina til að stækka hana.

Hjá Ríkisendurskoðun starfa 47 manns með mismunandi bakgrunn, menntun og reynslu. Yfir 80% starfsmanna eru háskólamenntaðir og margir þeirra hafa meistaragráðu. Langflestir eru með próf í viðskiptafræði og fimm eru endurskoðendur. Þá starfa tveir lögfræðingar hjá stofnuninni, fimm eru með próf í stjórnmála- eða stjórnsýslufræðum, tveir í tölvunar- eða kerfisfræðum og tveir í hugvísindum. Hlutfall milli kynja er nánast jafnt og meðalaldur starfsmanna er um 52 ár. Stofnunin leggur áherslu á að starfsmenn viðhaldi þekkingu sinni og hæfni með markvissri endurmenntun.