20.04.2016
Ríkisendurskoðun hvetur velferðarráðuneyti til að ljúka sem fyrst heildarstefnumótun í málefnum geðsjúkra, fatlaðra og aldraðra dómþola og tryggja þeim nauðsynlega heilbrigðisþjónustu.
Ríkisendurskoðun telur ekki þörf á að ítreka ábendingar sínar úr eftirfylgniskýrslunni Skipulag og úrræði í fangelsismálum (2013). Að mati stofnunarinnar hefur innanríkisráðuneyti brugðist með fullnægjandi hætti við þeim þremur ábendingum sem þar var beint til þess. Þær lutu að því að forstjóri Fangelsismálastofnunar fengi umboð til að skipa forstöðumenn fangelsa, að vistunarúrræðum utan fangelsa yrði fjölgað og að tryggt yrði að fjármagn fylgdi lögbundnum verkefnum Fangelsismálastofnunar. Eins vinnur velferðarráðuneyti að verkefnum sem varða ábendingu Ríkisendurskoðunar um að föngum sé tryggð nauðsynleg heilbrigðisþjónusta. Stofnunin hvetur ráðuneytið engu að síður til að ljúka sem fyrst heildarstefnumótun í málefnum geðsjúkra, fatlaðra og aldraðra dómþola og tryggja þeim nauðsynlega heilbrigðisþjónustu. Stofnunin mun fylgja þessu máli eftir á komandi misserum.