Lindarhvoll ehf.

Skýrsla til Alþingis

18.05.2020

Ríkisendurskoðun hefur lokið eftirliti með framkvæmd Lindarhvols ehf. á samningi sem fjármála- og efnahagsráðherra gerði við félagið um umsýslu, fullnustu og sölu á stöðugleikaframlagseignum.

Lindarhvoll ehf. var stofnað 15. apríl 2016 á grundvelli laga nr. 24/2016. Tilgangur félagsins var að annast umsýslu, ráðstöfun og sölu stöðugleikaframlagseigna.

Í skýrslunni kemur fram að álitamál sé hvort starfstími félagsins hafi verið nægjanlega rúmur. Mögulega hafi verið unnt að fá hærri tekjur fyrir einstaka eignir hefði sölu- og umsýslutíminn verið annar og lengri. Óhjákvæmilegt er þó að taka tillit til þess að vaxtakjör íslenska ríkisins bötnuðu vegna þess hversu greiðlega gekk að koma stöðugleikaframlagseignunum í verð. Þannig kunna að vegast á annars vegar hagsmunir þess að hraða sölu og fá þannig betri vaxtakjör og hins vegar möguleikar þess að fá hærra söluverð fyrir einstaka eignir á lengri tíma.

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar eru engar athugasemdir gerðar við störf stjórnar félagsins og rekstur þess. Stöðugleikaframlagið hefur skilað 460 milljörðum króna í ríkissjóð, en upphaflega var reiknað með að tekjur íslenska ríkisins yrðu 384 milljarðar króna.

Sjá nánar

Mynd með frétt