Verklegar framkvæmdir við varnargarða embætti ríkislögreglustjóra ofviða

Skýrsla til Alþingis

22.04.2026

Embætti ríkislögreglustjóra hafði ekki nauðsynlega þekkingu og burði til að fara með jafn umfangsmiklar og flóknar verklegar framkvæmdir og kveðið var á um í lögum nr. 84/2023 um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga. Embættið hefði þurft að skilgreina með mun skýrari hætti en gert var verkaskiptingu og ábyrgð einstakra aðila við uppbyggingu varnargarðanna. Enn fremur hefði embættið átt að leita sér óháðrar ráðgjafar svo tryggja mætti að hagsmuna ríkissjóðs væri betur gætt. Telur Ríkisendurskoðun það hins vegar hafa verið skynsama ráðstöfun þegar ríkislögreglustjóri fól Vegagerðinni hlutverk verkkaupa ríkisins, enda sú stofnun með tilhlýðilega sérþekkingu á umsýslu stórframkvæmda.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar, Varnargarðar á Reykjanesskaga: stjórnsýsla, kostnaður og ábyrgð, sem kynnt var fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis fyrr í dag. Í skýrslunni er þremur ábendingum beint til forsætisráðuneytis og dómsmálaráðuneytis og tveimur til fjármála- og efnahagsráðuneytis. Í þeim felst m.a. að tryggja þurfi að sá aðili sem fari með framkvæmdir og ábyrgð aðgerða vegna verndar innviða hafi burði til að leiða slík verkefni og reynslu af verklegum framkvæmdum. Brýnt sé að skilgreina mikilvæga innviði svo auka megi gagnsæi og fyrirsjáanleika og gæta betur að þeim kostnaði sem fellur á ríkissjóð vegna verndar þeirra. Ríkisendurskoðun telur einnig að framvegis þurfi að tryggja fjármögnun framkvæmda gegn náttúruvá með heildstæðri nálgun svo verkefni standi ekki ítrekað frammi fyrir skorti á fjárheimildum þegar vá er yfirvofandi.

Þess ber að geta að í skýrslunni er tekið undir með þeim fjölmörgu sem telja að varnargarðarnir við Svartsengi og Grindavík hafi til þessa sannað gildi sitt sem vörn gegn hraunrennsli. Að mati Ríkisendurskoðunar unnu verkfræðingar, verktakar, Vegagerðin og aðrir sem komu að hönnun varnargarðanna og verklegum framkvæmdum þrekvirki við krefjandi aðstæður.

Áætlaður heildarkostnaður vegna varnargarða sem reistir voru til að vernda mikilvæga innviði á Reykjanesskaga á tímabilinu 2023–2025 var um 12 milljarðar króna.