09.06.2026
Í skýrslunni kemur fram að árið 2023 fór rekstraraðili Reykjavíkurflugvallar, Isavia innanlandsflugvellir ehf. (Isavia INN), fram á það við Reykjavíkurborg að fjöldi trjáa í Öskjuhlíð yrði felldur til að tryggja öryggi í aðflugi. Borgin varð við þeirri kröfu að hluta en Isavia INN og Samgöngustofa, sem hefur með höndum stjórnsýslu og eftirlit á sviði flugmála, töldu viðbrögðin ófullnægjandi. Ágreiningur um umfang þessara aðgerða stóð allt fram til ársbyrjunar 2025. Þá ákvað Samgöngustofa að nauðsynlegt væri að loka flugbraut 13/31 tímabundið vegna flugöryggissjónarmiða, og framkvæmdi Isavia INN lokunina hinn 8. febrúar 2025.
Sett verði reglugerð til að stuðla að bættu samráði
Ríkisendurskoðun telur að samráði og samstarfi Reykjavíkurborgar, Isavia INN og Samgöngustofu hafi verið verulega ábótavant um langt árabil. Ágreiningur um túlkun og framkvæmd öryggiskrafna hafi orðið til þess að nauðsynlegar aðgerðir vegna trjágróðurs í Öskjuhlíð drógust úr hömlu. Embættið beinir því til innviðaráðuneytis að nýtt verði heimild í loftferðalögum til að setja reglugerð um samráð sveitarfélaga og rekstraraðila flugvalla.
Einnig hvetur Ríkisendurskoðun ráðuneytið til að tryggja að skipulagsreglur Reykjavíkurflugvallar verði endurskoðaðar. Þær eru frá árinu 2009 og hefur ekki verið breytt þrátt fyrir verulegar breytingar á lagaumhverfi, starfsemi flugvallarins og alþjóðlegum kröfum. Að mati embættisins er endurskoðun reglnanna m.a. mikilvægur liður í því að tryggja sameiginlegan skilning Reykjavíkurborgar, Isavia INN og Samgöngustofu á efni þeirra.
Samgöngustofa þarf að hafa skýrar lagaheimildir til íhlutunar
Í skýrslunni kemur fram að Samgöngustofa nýtti ekki heimildir í loftferðalögum til að grípa til aðgerða til að framfylgja skipulagsreglum flugvallarins er varða flugöryggi. Ástæðan var sú að stofnunin taldi heimildirnar ekki nógu skýrar og laggrundvöll þeirra ekki nógu traustan. Ríkisendurskoðun telur að innviðaráðuneytið eigi að beita sér fyrir því að ákvæði loftferðalaga um framfylgni skipulagsreglna verði endurskoðuð til að tryggja að heimildir Samgöngustofu til íhlutunar séu skýrar og hafnar yfir vafa.
Gildandi þjónustusamningur innviðaráðherra við Isavia INN um rekstur Reykjavíkurflugvallar rennur út í árslok 2026. Ríkisendurskoðun beinir því til innviðaráðuneytis að séð verði til þess að í nýjum samningi verði skýrt kveðið á um þjónustustig, starfsskilyrði flugvallarins og þær öryggiskröfur sem eigi að gilda. Jafnframt þarf ráðuneytið að taka til skoðunar hvort í nýjum samningi eigi að vera sérstök ákvæði um samráð og samstarf við sveitarfélög á áhrifasvæði flugvallarins.
Málefni er varða flugöryggi verði ekki gerð að samkomulagsatriði
Enn fremur bendir Ríkisendurskoðun á að komi til þess að gert verði nýtt samkomulag milli ríkis og borgar um málefni Reykjavíkurflugvallar verði innviðaráðuneyti að tryggja að málefni er varða flugöryggi verði ekki gerð að samkomulagsatriði milli aðila, líkt og raunin hefur verið.
Þess má geta að í skýrslunni er að finna ýmsar fleiri athugasemdir og ábendingar sem varða lokun flugbrautar 13/31 og stjórnsýslu flugmála.