Útlit fyrir fimmtungs fækkun stofnana á 6 árum

Skýrsla til Alþingis

22.10.2026

Útlit er fyrir að stofnunum ráðuneyta muni fækka um samtals 28 á tímabilinu frá árslokum 2020 til ársloka 2026. Það jafngildir tæplega fimmtungs fækkun (18%). Áform eru uppi um frekari fækkun stofnana á komandi misserum. Ríkisendurskoðun telur mikilvægt að ráðuneytin vandi undirbúning vegna sameiningar stofnana og sinni forystuhlutverki sínu af einurð.


Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri hraðúttekt Ríkisendurskoðunar. Þar er farið yfir þróun stofnanakerfisins á tímabilinu frá árslokum 2020 til ársloka 2025 og dregin upp mynd af mögulegri þróun til ársloka 2026.

Í árslok 2020 voru stofnanir ráðuneytanna samtals 155 en voru samtals 143 í lok síðasta árs og verða að líkindum 127 um næstu áramót.

Stofnanir með 50 stöðugildi eða færri voru samtals 85 í árslok 2020 eða rúmlega helmingur allra stofnana. Í lok síðasta árs voru stofnanir með 50 stöðugildi eða færri samtals 72 og útlit er fyrir að um næstu áramót verði stofnanir í þessum stærðarflokki samtals 58.

Í árslok 2020 voru stofnanir með 20 stöðugildi eða færri samtals 44, voru samtals 43 í árslok 2025 og útlit er fyrir að til ársloka 2026 muni stofnunum í þessum stærðarflokki fækka niður í 34 (sjá mynd).

Stjórnvöld hafa kynnt áform um frekari sameiningar stofnana á næstunni. Að mati Ríkisendurskoðunar er mikilvægt að ráðuneytin vandi undirbúning slíkra verkefna, sinni forystuhlutverki sínu af einurð og vinni að því að skapa samstöðu um breytingar. Þá telur embættið að stjórnvöld þurfi sér í lagi að kanna möguleika á frekari sameiningum stofnana sem hafa innan við 20 stöðugildi, með hagkvæmni og skilvirkni að leiðarljósi.

Fallið frá nokkrum fyrirhuguðum sameiningum

Í skýrslunni er vakin athygli á því að fallið hefur verið frá nokkrum fyrirhuguðum sameiningum stofnana, að því er virðist vegna andstöðu starfsfólks og stjórnenda. Hér má t.d. nefna annars vegar áformaða sam­einingu Menntaskólans við Sund og Kvennaskólans í Reykjavík og hins vegar Mennta­skólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri.

Einnig er í skýrslunni fjallað um ákvörðun háskólaráðs Háskólans á Akureyri um að slíta sameiningarviðræðum við Háskólann á Bifröst haustið 2025. Fram kemur að menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti hafi ekki verið haft með í ráðum þegar þessi ákvörðun var tekin. Ríkisendurskoðun bendir á að ráðuneytin gegni ótvíræðu forystuhlutverki þegar um er að ræða sameiningar stofnana. Stofnanir geti ekki einhliða ákveðið að binda enda á sameiningarferli, án samráðs við viðkomandi ráðuneyti.

Afdrif úrbótatillagna frá 2021

Árið 2021 birti Ríkisendurskoðun niðurstöður stjórnsýsluúttektar sem beindist að viðleitni stjórnvalda til að fækka ríkisstofnunum. Í skýrslunni var samtals fjórum úrbótatillögum beint til ráðuneyta:

Bent var á mikilvægi þess að stjórnvöld tækju afstöðu til þeirra tillagna sem lagðar höfðu verið fram um samstarf og sameiningu ríkisstofnana og fylgdu þeim eftir.

  • Mælst var til þess að stofnunum þáverandi mennta- og menningarmálaráðuneytisins yrði fækkað.
     
  • Lagt var til að fjármála- og efnahagsráðuneyti tæki að sér að leiða vinnu við að meta sóknarfæri sem felast í aukinni samvinnu stofnana um rekstur.
     
  • Öll ráðuneytin voru hvött til að tryggja gott eftirlit með þeim stofnunum sem undir þau heyra.

Nú fimm árum síðar telur Ríkisendurskoðun að stjórnvöld hafi brugðist með fullnægjandi hætti við tveimur fyrstnefndu úrbótatillögum skýrslunnar frá 2021 og að hluta við hinum tveimur. Nánar má lesa um viðbrögð við úrbótartillögum skýrslunnar í nýrri eftirfylgniskýrslu embættisins.

 

Mynd með frétt