16.02.2026
Með þessari skýrslu gerir Ríkisendurskoðun grein fyrir eftirfylgni með þeim niðurstöðum og tillögum til úrbóta sem settar voru fram í skýrslunni Tollframkvæmd vegna landbúnaðarafurða (2022), sem var gerð að beiðni Alþingis, sbr. þskj. 227 á 151. löggjafarþing 2020–2021.
Ríkisendurskoðun birti skýrsluna Tollframkvæmd vegna landbúnaðarafurða í febrúar 2022. Þar voru samtals settar fram fimm tillögur til úrbóta sem beint var til fjármála- og efnahagsráðuneytis og Skattsins. Í nóvember 2025 hafði verið komið að fullu til móts við þrjár tillögur af þessum fimm og við eina tillögu að hluta. Hins vegar vantaði mikið upp á að komið hefði verið til móts tillögu þar sem ráðuneytið og Skatturinn voru hvött til að endurskipuleggja og efla tolleftirlit og tollendurskoðun.
|
Tillögur í skýrslunni 2022 |
Mat Ríkisendurskoðunar á viðbrögðum |
Ábyrgðaraðilar |
|
Ráðast þarf í heildstæða endurnýjun tölvukerfa tollasviðs Skattsins. |
Komið hefur verið til móts við tillöguna að hluta. Unnið hefur verið að úrbótum á kerfunum en ekki hefur farið fram heildstæð endurnýjun á þeim. |
fjármála- og efnahagsráðuneyti og Skatturinn |
|
Setja verður gæði gagna í forgang. Töluvert vantar upp á áreiðanleika og nákvæmni upplýsinga í tollskýrslum. |
Komið hefur verið til móts við tillöguna. Gripið hefur verið til ýmissa aðgerða til að stuðla að aukinni nákvæmni og áreiðanleika tollskýrslna. |
|
|
Endurskipuleggja og efla þarf tolleftirlit og tollendurskoðun. |
Ekki hefur verið komið til móts við tillöguna. Ekki verður séð af þeim gögnum sem Ríkisendurskoðun hefur aflað að tolleftirlit og tollendurskoðun hafi verið efld. |
|
|
Vöruskoðun landbúnaðarafurða verði gerð víðtækari og að viðvarandi verkefni tollasviðs Skattsins. |
Komið hefur verið til móts við tillöguna. Aðferðir við greiningu á þörf fyrir vöruskoðun hafa verið efldar. |
|
|
Yfirstjórn tollamála þarf að tryggja samræmda tollframkvæmd og leysa úr álitamálum. Tryggja þarf að reglulega sé fjallað um álitamál í tollframkvæmd á fundum framkvæmdastjórnar Skattsins. |
Komið hefur verið til móts við tillöguna. |