Yfirlit um ársreikninga sókna vegna ársins 2017

09.11.2018

Ríkisendurskoðun hefur haft eftirlit með ársreikningum sókna frá og með árinu 1997. Eftirlit stofnunarinnar felst fyrst og fremst í því að kanna hvort þeir séu tölulega réttir. Auk þessa eru ársreikningar sókna skráðir í gagnagrunn til að auðvelda eftirlit með skilum og aðra athugun á þeim.

Samræmt reikningsform fyrir sóknir var samþykkt af Kirkjuráði á árinu 2004 og hefur það verið notað síðan.

Í árslok 2017 voru 266 starfandi sóknir í níu prófastsdæmum sem skila eiga ársreikningum til Ríkisendurskoðunar. Nokkrar sóknir voru sameinaðar á árinu 2017. Í lok október 2018 hafði Ríkisendurskoðun borist ársreikningar frá 231 sókn vegna ársins 2017.

Yfirlit um ársreikninga sókna vegna ársins 2017 (pdf)

Mynd með færslu