Greinargerð Ríkisendurskoðunar vegna hönnunar- og eftirlitskostnaðar árin 1989

01.01.1992

Í úttekt þessari er gerð grein fyrir athugun Ríkisendurskoðunar á nefndum kostnaði sem færður er í ríkisbókhaldi og hjá Framkvæmdadeild Innkaupastofnunar ríkisins. Könnuð voru skilamöt framkvæmda sem lokið er við og fyrir liggja hjá Framkvæmdadeild og öðrum aðilum til að fá fram hlutfall hönnunar- og eftirlitskostnaðar af heildarkostnaði framkvæmda. Ennfremur var aflað upplýsinga erlendis frá til samanburðar við það sem hérlendis gerist. Þá var sérstaklega aflað upplýsinga hjá þeim stofnunum sem sjá um opinberar framkvæmdir af hálfu ríkisins eða kaupa umtalsverða sérfræðiþjónustu sem tengist þessu viðfangsefni.

Greinargerð Ríkisendurskoðunar vegna hönnunar- og eftirlitskostnaðar árin 1989 (pdf)

Mynd með færslu